Fríðan

Velkomin

10.01.2009 20:54:00 / Fríðan

Annál 2008

 

Janúar 2008

Það var vöndu matarboð í janúar  hjá Hildi

Amma var meira inni á spítala en heima sjá sér  við horfðum saman á Em í handbolta og það var  svo gaman að sjá hvað hún hafði gaman af handboltanum og auðvitað studdi hún áfram okkar menn.

Febrúar 2008

Ég gerðist hetja ;-) allavega í 10 mínútur þegar ég slökkti eld sem kom upp úr holræsi fyrir utan vinnuna mína .

Vöndurnar komu líka allar saman og fóru í keilu Guðný og Jóhanna voru á landinu Helga var með party og eftir partýjið fórum við á ball með Friðrik Ómar og Regínu  á Hótel Íslandi en það sama kvöld voru þau kosin áfram í Eurovision, við gerðumst  reyndar gelgjur og eltum þau á Nasa á annað ball það sama kvöld gera aðrir betur. 

Í Febrúar snjóaði svo heilan helling og það var brjálað veður .

Friðrik fór á fótboltaleik  Manchester united - Manchester city voru reyndar veðurtepptir úti á flugvelli vegna brjálaðs veður en flugu út morgunin eftir, eftir skuggalega nótt á Hóteli í Keflavík.

Mars 2008

Fór í lagfæringu á framtönninni minn.  Stytting á rót á tönn og saumuð  bak og fyrir .Mánuði síðar fékk ég svo nýja tönn sem er æði og kostaði hún böns.

Apríl 2008

Fór í stafagöngunámskeið með Jóhönnu vinkonu minni úr vinnunni og það var bara gaman.

Fór einnig á minningar tónleika Villa Vill í salnum  og í leikuhús

Gamli ískápurinn gaf  sig og var keyptur nýr.

Við Friðrik fögnuðum 9 ára sambúð í blíðu og stríðu.

Brynjar hætti með bleyju.

Maí 2008

Foreldrar barna í 1. Bekk eru farin að plana sumarið hvar eiga börnin að vera á meðan skólinn lokar.

Helena gisti í ÍR með stelpunum í sínum flokki og skemmti sér vel.

Jarðskjálfti var líka í maí og margir voru hræddir og margt skemmdist um allt land.

Systkini Friðriks og makar og mamma hans og pabbi fórum saman í vorferð í sumarbústað fengum tvo bústaði og skemmtum okkur vel.


Júní 2008

1.      Útilega sumarsins var farin á Laugaland, þvílíkt barnvænn staður.

Em í fótbolta var og fygldumst við spennt með.

2.       útilega sumarsins var farin á svæði rafiðnarðarmanna við Apavatn það var geggjað veður sól og blíða alla helgina.

Amma var 85 ára og skemmti sér vel í svaka partý sem var sett upp í sumarbústað elsta sonar síns í Vaðnesi

Ég var bitin af pöddu og fékk sýkingu og ofnæmi af bitinu .

3.       fellihýsaferðin var farin á sauðárkrók og við höfum bara aldrei lent í öðru eins veðri rigning og brjála rok og skíta kuldi  alla helgina.  Helena var keppa í fótbolta þessa helgi .

Ísbirnir gengu líka á land á þessum slóðum þenna mánuð  ekki nema furða.

Júlí  2008

4.       Fellihýsaferðin var farin á svæði rafiðnaðarmanna við Apavant og að þessu sinni fórum við með Hildi og Kjartani og þeirra krílum fengu að sjálfsögðu bongó blíðu hitinn fór upp í 23 stig.

5 .Fellihýsaferðin var farin að svæði rafiðnarðarmanna á Apavatni Hildur og kjartan voru í sumarbústað og einnig vina hjón okkar Eiríkur og Rósa. Helga og Gulli komu einn dag og gistu hjá Hildi og kjartani í sumarhúsi.

Mamma og pabbi gistu eina nótt með sitt nýja fellihýsi 

Og Jens og Dagný komu líka,við veiddum 3 fiska í vatninu.

Vöndur fóru á skrall og endaði mynd af þeim á superman.is  Jóhanna var á skerinu og fór hún með okkur á djammið .

Helena keppti í símamótinu í fótbolta í Fífunni.

Ágúst 2008

Ólympíuleikarnir voru í Ágúst

Og var mikið hitamál með þessa blessuðu Borgarstjórn það  var skipt um Borgarstjóra já nokkru sinnum.

6.   Ferðin  var um  Verslunnarmannahelgina og  var farin á Laugaland við Hellu með Nínu og Matta, Alla og Dísu .

7 . Ferðin var farin austur á Flúðir  við Sóleyjarbakka  eina nótt. Eftir verslunnarmanna helgina þá fórum við í 5 daga upp í sumarbústað til mömmu og pabba.

Brynjar Máni varð  3 ára

Friðrik fór að vinna í Slóvakíu í 10 daga. Helena fór í 2.bekk og fékk nýjan kennara, hún komst ekki inn í skólaselið og var mikill þeytingur fram og til baka þar til í lok nóvember.

September  2008

Ísland keppti við skotland í fótbolta og tapaði. Á Íslandinu voru ekkert nema skotar á hverju horni í skotapilsi.

Helena varð 7 ára og það var haldið mikið bekkjarpartý.
Friðrik fór aftur að vinna í Slóvakíu í 4 daga.

Fórum til London í árshátíðarferð með Umferðarstofu.

Október 2008

Þá söng Helena í kór fyrir fullri kirkju með kórnum sínum og Björgvin frændi kom oft í heimsókn til okkar, Brynjar byrjaði í Íþróttaskóla Breiðabliks.

Við fórum í heimsókn á Sóleyjarbakka eina helgi

Nóvember 2008.

Fórum í sumó til mömmu og pabba með Björgvin frænda.

Í nóvemer fórum við einnig í sumarbústað  í Úthlíð.

Desember 2008

Vöndur fóru í sitt árlega jólahlaðborð og skrall .

Í lok Des þá kom Jóhanna til landsins og máttum við til með að fara á skrall þá líka, Guðný kom og kíkti við og hittust við þá allar saman, höfðum ekki hisst allar saman síðan í Febrúar.

Vöndur hittust einnig með börnin sín í pylsupartý hjá Hildi 10 stykki af krílum á svæðinu, Guðný komst því miður ekki með sín 2 .... bráðum 3.

Já við erum ríkar vinkonurnar.

 

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.12.2008 10:26:43 / Fríðan

Vinur

 

Vinur

 

Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á,

í víðáttu stórborgarinnar.

En dagarnir æða mér óðfluga frá

og árin án vitundar minnar.

 

Og yfir til vinarins aldrei ég fer,

enda í kappi við tímann.

Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans er,

því viðtöl við áttum í símann.

 

En yngri vorum við vinirnir þá,

af vinnunni þreyttir nú erum.

Hégómans takmarki hugðumst við ná

og óflausan lífróður rérum.

 

“Ég hringi á morgun„ ég hugsaði þá,

„svo hug minn fái hann skilið.“

En morgundagaurinn endaði á

að ennþá jókst á milli’ okkar bilið.

 

Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,

að dáinn sé vinurinn kæri.

Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk,

að í grenndinni ennþá hann væri.

 

Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd,

gleymdu’ ekki hvað sem á dynur,

að albesta sending af himnunum send,

er sannur og einlægur vinur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.12.2008 23:13:17 / Fríðan

Nokkur góð orð


Þessi orð ætla ég að fara með inní nýtt ár.




"Að eiga vin er öllu betra,

að eiga von er nauðsynlegt,

að eiga ást er undur lífsins,

að þekkja þig er yndislegt"

,,Mundu að gleyma mistökum fortíðarinnar og stefna að betri árangri í framtíðinni"

,,Berðu virðingu fyrir öðru fólki og brjóttu það ekki niður. Mundu að allt sem þú gerir öðrum færð þú til baka"


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2008 23:11:59 / Fríðan

Jólakveðja

Ég og mín kæra fjölskylda viljum óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þökkum árið sem er að líða.....Jólakveðja

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.12.2008 08:58:50 / Fríðan

Hvað er ást.

Spurningin “Hvað er ást?” var lögð fyrir hóp fjögurra til átta ára barna. Svörin koma skemmtilega á óvart: 



'Þegar amma mín fékk liðagigtina gat hún ekki
beygt sig niður til að lakka táneglurnar lengur.
Svo að afi minn gerði það alltaf fyrir hana jafnvel
eftir að hendurnar hans fengu liðagigt líka. Það er ást.'
Rebe
kka 8 ára




'Þegar einhver elskar þig, segja þeir nafnið þitt öðruvísi. Þú bara veist að nafnið þitt er öruggt í munninum á þeim.' 
Vilhjálmur
4 ára




'Ást er þegar stelpa setur á sig ilmvatn og strákur setur á sig rakspíra
og þau fara út og lykta af hvort öðru.'
Karl
5 ára



'Ást er þegar þú ferð út að borða með einhverjum og hann gefur þér frönskurnar
sínar án þess að láta þig gefa sér nokkuð af þínum eigin.' 
Kristín
6 ára



Ást er það sem lætur þig brosa þegar þú ert þreytt.'
Terri
4 ára



'Ást er þegar mamma gerir kaffi handa pabba og hún tekur sopa áður en hún gefur honum það til að vera viss um að bragðið sé í lagi.'
Daníel
7 ára




'Ást er þegar þið kyssist öllum stundum. Síðan þegar þið eruð þreytt á að kyssast viljið þið enn vera saman og tala meira. Mamma mín og pabbi eru þannig. Það er ógeðslegt þegar þau kyssast'

Emil
8 ára




'Ást er það sem er með þér í stofunni á jólunum ef þú stoppar að taka upp gjafirnar og hlustar.'  
Robert
7 ára
(Vá! Djúpt)


'Ef þú vilt læra að elska meira skaltu byrja á vini sem þú hatar,'
Nikulás
6 ára
(við þurfum nokkrar milljónir af Nikkum á þessa jörð)
 



'Ást er þegar þú segir strák að þér finnist skyrtan hans falleg,
og þá gengur hann í henni alla daga.'
Norma
7 ára  




'Ást er eins og lítil gömul kona og lítill gamall maður sem eru
enn vinir jafnvel eftir að þau kynnast hvort öðru svo vel.'
Tommi
6 ára


'Þegar ég var með píanótónleikana mína, var ég á sviði og ég var hrædd.
Ég leit á allt fólkið sem horfði á mig og sá pabba minn veifa og brosa. Hann var sá eini sem gerði það. Ég var ekki hrædd lengur' 
Sigga 8 ára




'Mamma mín elskar mig meira en nokkur annar.
Þú sérð engan annan kyssa mig góða nótt á kvöldin.'  

Klara 6 ára



'Ást er þegar mamma gefur pabba besta hlutann af kjúklingnum.'
Elín - 5 ára




'Ást er þegar mamma sér pabba illa lyktandi og sveittan
og segir enn að hann sé myndarlegri en Bubbi Morthens.'  
Kristinn 7 ára



'Ást er þegar hvolpurinn þinn sleikir þig í framan
eftir að þú skildir hann eftir einan allan daginn.'
María – 4 ára
 



'Ég veit að stóra systir mín elskar mig vegna þess hún gefur mér
öll gömlu fötin sín og verður að fara í búðina og kaupa ný.'
Lára – 4 ára



'Þegar þú elskar einhvern, fara augnhárin upp og niður
og litlar stjörnur koma út úr þér.' (þvílík sýn)
Karen – 7 ára



'Þú ættir ekki að segja “Ég elska þig” nema þú meinir það.
En ef þú meinar það áttu að segja það oft.  Fólk gleymir.'
Jóhanna – 8 ára


Og að lokum:

4 ára gamall drengur átti gamlan herramann að nágranna sem hafði nýlega misst konuna sína.
Þegar hann sá gamla manninn gráta, fór litli drengurinn inn í garð herramannsins, klifraði upp í kjöltu hans og sat þar.
Þegar móðir drengsins spurði hann hvað hann hafði sagt við gamla manninn svaraði drengurinn: “Ekkert. Ég bara hjálpaði honum að gráta”


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.10.2008 11:08:18 / Fríðan

Jákvæðni og betri heilsa

Í fyrsta lagi er mikilvægt að koma í veg fyrir að fata manns tæmist með því að spyrja sjálfan sig hvort maður sé að fylla eða tæma fötu annarra. Ertu að gera stöðugt grín að einhverjum? Bendir þú fólki aðeins á það sem það gerir rangt?

Í öðru lagi er gott að beina orkunni og athyglinni að því sem er jákvætt í stað þess að einblína á hið neikvæða. Maður þarf að segja að minnsta kosti fimm jákvæða hluti við fólk áður en maður getur sagt eitthvað neikvætt. Sálfræðingurinn John Gottman komst að því í merkilegri rannsókn að hjónabönd endast ekki ef hlutföllin eru ekki betri en eitt jákvætt á móti einu neikvæðu.

Í þriðja lagi er mikilvægt að eignast bestu vini þar sem þau sambönd leiða til aukinnar ánægju. Segðu fólki í kringum þig að þér þyki vænt um það og hvers vegna. Veittu öðrum stuðning og hvatningu og vertu sá sem það getur leitað til.

Í fjórða lagi er um að gera að gefa óvæntar gjafir, sem geta verið hlutir, traust, virðing, ábyrgð eða hrós. Það að fá óvænta gjöf fyllir fötuna óvæntri orku.

Síðast en ekki síst er mikilvægt að snúa gullnu reglunni við: Að koma fram við aðra eins og þeir vilja að þú komir fram við þá.

Jákvæðar hugsanir geta orðið að venju alveg eins og neikvæðar hugsanir. Þar sem líf okkar allra tvinnast saman er mikilvægt að einblína á hið jákvæða og njóta samskiptanna við annað fólk. Jákvæðni veitir almenna gleði og hamingju. Ásamt því að verja líkama okkar fyrir ágangi flensupesta. Það er svo sannarlega betri kostur að lifa lífinu hamingjusamur og lifandi í gleði og jákvæðni


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 21:05:11 / Fríðan

já já

Oftar en ekki þá hef ég blótað  símanum mínum því ég hef heyrt svo ílla í fólkinu sem ég hef verið að tala við.
 Um tíma var ég að hugsa um að fara í heyrnamælingu því ég þetta var ekki orðið eðlilegt sannfærði  meira að segja sjálfan mig algjörlega .....því ég heyrði ekki neitt í heddsettinu  í vinnunni.

Ennnnn  á flugvellinum áður en við hjónaleysin flugum til london þá álpaðist ég að fikkta aðeins í simanum mínum sem ég er búin að eiga í bæþei vei  1 ár  ýtti á  plúss og mínus takkan á símanum á hliðinni á  meðan ég var að tala í hann og  helvítis kvikindið hækkaði  röddina á hinni línunni..... Eigum við að ræða þetta eitthvað #######

London var æði komum um miðjan dag fimmtudegi  og þvílíka blíðan þann tíma sem við vorum þarna 20 stiga hiti og sól .
Í  stuttu máli sagt
Á föstudeginum  um kvöldið var svo árshátíð US  haldin á Thames ánni á bát sem var alveg  rosalega flott, á laugardeginum þá fórum við á fótboltaleik  og þvílík upplifun ég ætla  sko á annanleik í framtíðinni sunnudagurin fór í  heimferð.



» 2 hafa sagt sína skoðun

26.09.2008 14:13:01 / Fríðan

FRUMEFNIÐ KARL

Borist hefur tilkynning um að nýtt frumefni hafi fundist: "FRUMEFNIÐ KARL"

Frumefnið finnst: Í sófum, á kaffihúsum, börum, bjórkrám, á öðrum endanum á vindli eða veiðistöng. Sjaldan þó nálægt börnum.

Eðlisþyngd : 70-140 kg. Og er breiðast um miðjuna.

Eðliseiginleikar: Þenst út í nálægð peninga og valds, skreppur samaní grend við ryksugu og gólfskrúbba, fuðrar upp við strokur og hól, slokknar á við umræður umjafnrétti og kvenfrelsi. Þó ósjálfbjarga án kvenna.

Efniseiginleikar: Dregst að fokdýrum dauðum hlutum, tækjum og tólum. Ofsafengin viðbrögð við skorti á ummönnun og eftirtekt, og eins og áður segir, ósjálfbjarga án kvenna.

Notkun: Nauðsynlegt (ennþá) til æxlunar en ekki til teljandi gagnsað öðru leiti. Hristist við notkun.

Varúð: Getur eitrað líf kvenna ef þær eru ekki á verði.


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.09.2008 21:51:49 / Fríðan

andskoti

Já síðast liðnir dagar hafa verið svolítið spes hérna við vinnununa mína, það er nefnilega hótel hérna hliðna á okkur þar sem  eru nokkrir skotar.
 Víð skvísurnar höfum nú aðeins verið að fylgjast með þessum prúðu og kurteisu mönnum, þeir settu bara svolítinn svip á Reykjavíkina sem annars er að undirbúa sig fyrir haustið þessa dagna.


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.08.2008 19:04:45 / Fríðan

Lestu þetta yfir



Þetta er svona panda.

Þetta er fær panda.

Þetta er maður panda.

Þetta er bjána panda.

Þetta er til panda.

Þetta er að panda.

Þetta er gleyma panda.

Þetta er sér panda.

Þetta er í panda.

Þetta er hálfa panda.

Þetta er mínútu panda. 




Farðu núna til baka og lestu þriðja orðið í hverri línu, sjáðu hvað þú
stóðst þig vel!!!



» 1 hafa sagt sína skoðun

23.08.2008 21:02:03 / Fríðan

5# & #6 ferðin ofl

5# fellihýsaferðin var svo aftur farin á svæði rafiðnaðarmanna á apavatn 24 júlí  vorum þar í 5 daga.Tvenn vinahjón okkar voru  í  viku sumarbústað þau Hildur og Kjartan og Eiríkur og Rósa  og tilvalið að kíkja í heimsókn til þeirra.

Helga og Gulli komu einn dag og grilluðm við með  eitt kvöldið, en þau gistu í sumarbústaðinum með Hildi og Kjartani  og co.

Nú mamma og pabbi kíktu líka í eina nótt áður en þau héldu í 2 vikna ferðalag vestur. Jens og Dagný komu líka við og gistu á tjaldsvæðinu nokkrar nætur.
Eitt kvöldið fórum við niður að vatni og veiddi við 3 fiska börnunum fannt það mjög spennandi.  Það var æðislegt að hafa allt þetta yndislega fólk í kringum sig.

6# ferðin var farin að Laugalandi við Hellu, Matti Nína og Stína fóru með okkur yfir verslunnarmannahelgina. Dísa og Alli kíktu líka við eina nótt . Á sunnudeginum færðum við okkur á Sóleyjarbakka við Flúðir  til Halldóru og Karels og vini þeirra þar gistum þar eina nótt. Eftir þetta allt saman þá fórum við upp í sumarbústað til mömmu og pabba og vorum þar í 5 daga.

Þessa dagana erum við bara þrjú í kotinu en Friðrik fór að vinna í  Bratislava í Slóvakíu verður í 10 daga eða svo.

Skólasetning var svo á föstudaginn og er daman komin í annan bekk voðalega stollt. Hún komst ekki inn á frístundarheimilið eftir skóla þar sem það vantar starfsmenn til starfa  þannig að hún verður eitthvað á þeytingi litla skottið næstu vikurnar eða mánuði í pössun eftir skóla, við krossum bara fingur um að hún komist inn í næsta mánuði.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.08.2008 13:35:30 / Fríðan

Borgar-óstjórn

Hann lýgur víst ekki hann Gunnar Birgirsson það er gott að búa í kópavogi!!
Hvað er að gerast með þessa borgarstjórn.
Eftir 20 ár sitja krakkar á skólabekk og læra um stjórnmál, eins spurningin er  hvað sátu margir borgarstjórar kjörtímabilið 2005-2009.Sé fyrir mér heilu bekkina falla falla falla eins og borgarstjórnin.

Fríðan hefur lokið sínu máli.

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.08.2008 22:28:58 / Fríðan

ólympíuleikarnir

Á meðan karlarnir horfa á blak, þá horfum við skvísurnar á dýfingar :lol:

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2008 20:28:53 / Fríðan

afmæli

það var sunnudaginn 14 ágúst   þegar ég vaknaði  velti mér á aðra hliðina hrikalega ófrísk ,ég fann að það gerðist eitthvað inn í maganum á mér, flýtti mér á klósettið að pissa alveg í spreng, svo stóð ég upp og það lak bara meira og meira.
Ég sagði við Friðrik minn að við værum sko ekkert að fara í neina skírnarveislu í dag (en systir hans Friðriks var  að fara að skíra sitt kríli) ,við erum að fara upp á deild að eiga barn.
Eftir nokkra tíma vinnu... heil mikla vinnu og erfiði  þar sem ég ákvað að taka ekki nein verkjalyf kom krílið í heiminn og hann var svo fallegur sléttur og sætur, og hrikalega stór, Já það eru orðn 3 ár síðan.  Til hamingju með daginn kútur.
 

´

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11